SalarleigaSkilmálar

Bókunarskilmálar Iðnó

  1. 01

    Veitingar fara í gegnum Iðnó. Samtal um uppsetningu á matseðli og drykkjum er ávallt í boði.

  2. 02

    Öll tæknimál verða að fara í gegnum Iðnó og við erum með sérkjör hjá tækjaleigum sem leigutaki hefur aðgang að. Samtal um annað er ávallt í boði, en við áskiljum okkur rétt til að hafna eða samþykkja tæknibúnaði sem fer inn í húsið.

  3. 03

    Salarleigan er greidd við bókun viðburðar og við áskiljum okkur rétt til að halda henni ef hætt er við viðburð innan við 30 dögum fyrir bókaðan dag í húsinu. Bókun telst ekki staðfest fyrr en að salarleiga hefur verið greidd.

  4. 04

    Matar- og drykkjarpöntun skal liggja fyrir að lágmarki 10 dögum fyrir viðburð, með undantekningu fyrir erfidrykkjur. Greiða þarf 50% af matarpöntunum a.m.k. 5 virkum dögum fyrir viðburð.

  5. 05

    Leigutaki ber ábyrgð á skemmdum á búnaði og innviðum hússins ef slíkt kemur upp á meðan viðburði stendur.

  6. 06

    Iðnó tekur ekki ábyrgð á verðmætum gesta sem kunna að glatast eða gleymast á meðan viðburði stendur.