
Stórtónleikar í Iðnó — Ungfrúin góða og búsið
Ungfrúin góða og búsið er sex manna blúsband sem spilar rokkskotinn blús. Þau eru þekkt fyrir mjög fjölbreytt og skemmtilegt lagaval þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi. Nú verður talið í stórtónleika í Iðnó.
Bandið flytur vandaða cover tónlist frá mörgum af þekktum blústónlistarmönnum heims. T.d. Shemekia Copeland, Etta James, Beth Hart, Susan Tedeschi, Maggie Bell og fleirum blússnillingum.
Hljómsveitina skipa: Kristjana Þórey Ólafsdóttir, söngur Helgi Georgsson, píanó og söngur Árni Björnsson, gítar Jón Bjarki Bentsson, bassi Aðalsteinn Snorrason, gítar Skúli Thoroddsen, trommur
Hljómsveitin hefur starfað í núverandi mynd í rúm þrjú ár og komið fram reglulega með tónleika, t.d. Dillon, Ægir 220, Ölver, Krúttið, Bird, Krúserklúbburinn, Djúpið. Tekið þátt í Blúshátíð Reykjavíkur og Menningarnótt í Hörpu. Þetta verður kvöld þar sem blúsinn ræður ríkjum og er von á mikilli stemningu.
Miðaverð aðeins 4.900 kr. og hægt að nálgast þá á TIX.IS



