
← Til baka í dagskrá
Viðburður á Iðnó
Bjarni Ingólfsson Kvartett
Bjarni Ingólfsson Kvartett flytur nýja tónlist eftir gítarleikarann Bjarna Má Ingólfsson ásamt ýmsum minna þekktum perlum jazztónlistar frá mismunandi skeiðum jazzsögunnar.
Bjarni Már hefur hlotið athygli fyrir tónsmíðar sínar og spilamennsku bæði heimafyrir og erlendis, en síðan árið 2018 hefur Bjarni verið búsettur erlendis í New York, Stokkhólmi og nú Oslo, og hefur á tíma sínum erlendis stigið á svið með ýmsu af fremstu jazztónlistarfólki norðurlanda. Þetta sunnudagskvöld í Iðnó stígur nýr kvartett á svið í fyrsta sinn:
Bjarni Már Ingólfsson, Gítar Hilmar Jensson, Gítar Snorri Skúlason, Kontrabassi Einar Scheving, Trommur

Lokið
—
Hvenær
sunnudagur, 10. maí 2026 · 20:00
Hvar
Iðnó · Vonarstræti 3


