
Ingibjörg Turchi
Ingibjörg Turchi- Eonia
Eonia er nýtt verk úr smiðju bassaleikarans og tónskáldsins Ingibjargar Turchi. Hefur það verið í vinnslu síðustu misseri eftir að önnur plata hennar, Stropha, kom út árið 2023. Á þeirri plötu bættust þrír tréblástursleikarar við hennar hefðbundnu hljómsveit. Verkið er samið með samhljóm tréblástursins í huga í bland við hljóðfæri ryþmasveitarinnar. Eins og á fyrri plötum Ingibjargar er unnið með opin form og frjálsan spuna sem svo koma saman í nákvæmari útsetningum og mynda þannig þann hljóðheim sem hún hefur verið að byggja upp síðustu ár. Verkið verður flutt í heild sinni en verður rammað inn af tónlist af plötum hennar Meliae og Strophu.
Hljóðfæraskipan er svohljóðandi: Rafbassi-Ingibjörg Elsa Turchi Rafgítar-Hróðmar Sigurðsson Píanó- Magnús Jóhann Ragnarsson Trommur og slagverk- Magnús Trygvason Eliassen Tenórsaxófónn-Tumi Árnason Altósaxófónn-Sölvi Kolbeinsson Klarínett-Sólveig Morávek Baritónsaxófónn og flauta-Rósa Guðrún Sveinsdóttir
Brot úr umfjöllun All About Jazz frá Jazzhátíð 2025: “The performance unfolded as a suite of shifting moods and dynamics....Over its length, the piece moved through contrasting passages, its unpredictability recalling the exploratory spirit of Cecil Taylor while remaining grounded in Turchi's own voice.”



