
Litlasveit
Litlasveit er hljómsveit sem samanstendur af sex drengjum í menntaskóla. Þeir spila frumsamda tónlist sem einkennist af leikandi laglínum, óhefðbundnum takttegundum og sérkennilegri hljóðfæraskipan þar sem bæði túba og baritónsaxófónn fá að láta ljós sitt skína. Hljómsveitin sækir innblástur í hinar ýmsu tónlistarstefnur en kjarni tónlistarinnar er þó alfarið djass og spunatónlist.
Hljómsveitin gaf nýlega út smáskífu sem ber einfaldlega nafnið ‘Litlasveit’. Smáskífan var tekin upp í Sundlauginni og er hún þeirra fyrsta útgáfa. Hljómsveitin kom fyrst fram á Djasshátíð Reykjavíkur í fyrra og síðan þá hefur hún leikið á tónleikum hér og þar.
Litlusveit skipa þeir Kári Kolbeinn (píanó), Frosti Pétur (trompet), Ísar Orri (trommur), Björn (gítar og bassi), Tryggvi Kristinn (saxófónn), og Styrkár Flóki (túba).



