Aoife O'Brien
Til baka í dagskrá
Viðburður á Iðnó

Aoife O'Brien

Aoife er írsk/bresk söngkona og lagahöfundur sem hefur búið í Reykjavík síðastliðin 5 ár. Hún semur af einlægni með textana sína í fyrirrúmi, undir sterkum áhrifum djass og alt-popp.

Hún stundar nú meistaranám í NAIP (New Audiences and Innovative Practice) við LHÍ og mun hefja nám í djassöng við Tónlistar- og Dansháskólann í Köln síðar á þessu ári.

Í mars gaf hún út sína fyrstu smáskífu, „Never Been One to let a Bygone Go“, og stefnir á að gefa út meira efni síðar á árinu. Hún mun flytja sína frumsömdu tónlist sem og lög sem hún samdi í samstarfi við Sævar Helga Jóhannsson.

Aoife - söngur

Sævar Helgi Jóhannsson - píanó

Alexander Grybos - gítar

Hjálmar Karl Guðnason - bassi

Andri Eyfjörð - trommur

Aoife O'Brien
Hefst eftir
Hvenær
sunnudagur, 16. ágúst 2026 · 20:00
Hvar
Iðnó · Vonarstræti 3
Miðaverð frá
3.000 kr.