GKR -10 ára
Til baka í dagskrá
Viðburður á Iðnó

GKR -10 ára

GKR - 10 ára

10 ár eru liðin frá því að GKR gaf út plötuna „GKR“ í formi morgunkornspakka í Kjötborg og því ber að fagna!

Tónleikarnir sem fara fram í Iðnó munu líkt og allt sem GKR gerir vera einstök upplifun. 

Þann 10. október fyllir GKR Iðnó ásamt vel völdum gestum. Þetta eru fyrstu miðasölutónleikar GKR á Íslandi í 9 ár og einstakt tækifæri til að taka á móti honum á heimavelli. Hann er loksins fluttur heim eftir 5 ára dvöl í Noregi og getur ekki beðið eftir að sýna ykkur hvað hann hefur lært.

GKR ættu allir íslenskir tónlistarunnendur að þekkja en hann kom fram á sjónarsviðið árið 2015 með laginu sínu "Morgunmatur". Í dag er hann einn fremsti rappari landsins, þekktur fyrir rafmagnaða sviðsframkomu, framúrstefnuleg tónlistarmyndbönd og að koma íslensku rappi á framfæri erlendis.

UPPHITUN: Tatjana & Ungur Orri Takmarkaður fjöldi miða á forsöluverði: (linkur hér)

SJALDGÆFUR VIÐBURÐUR. HÆTTULEGA GÓÐIR TÓNLEIKAR.

GKR -10 ára
Hefst eftir
Hvenær
laugardagur, 10. október 2026 · 21:00
Hvar
Iðnó · Vonarstræti 3
Miðaverð frá
5.990 kr.