Jólablús
← Til baka í dagskrá
Viðburður á Iðnó

Jólablús

Blússveit Þollýjar með gítarleikarana Friðrik Karlsson í Mezzoforte og Tryggva Hubner í broddi fylkingar býður til glæsilegrar Jólablúsveislu í Iðnó. Kröftugur ryþmablús með gospelívafi, hugljúfar melódíur og jólalög í blúsbúningi. Einstakir jólatónleikar sem enginn tónlistarunnandi má láta framhjá sér fara.

Blússveitina skipa:

Þollý Rósmunds söngur

Friðrik Karlsson gítar

Tryggvi Hubner gítar

Jonni Richter bassi

Fúsi Óttars trommur

Sérstakur gestur: Siggi Ingimars söngvari og gítarleikari.

Takmarkaður sætafjöldi. Tryggið ykkur miða í tíma - síðast var uppselt!

Jólablús
Hefst eftir—
Hvenær
fimmtudagur, 10. desember 2026 · 20:00
Hvar
Iðnó · Vonarstræti 3
Miðaverð frá
5.900 kr.