NIRVANA ROKKMESSA │ NEVERMIND 35 ÁRA
Til baka í dagskrá
Viðburður á Iðnó

NIRVANA ROKKMESSA │ NEVERMIND 35 ÁRA

JACK ROCKS KYNNIR│NEVERMIND 35 ÁRA. Nevermind er önnur plata Nirvana og sú sem skaut sveitinni til heimsfrægðar á einni nóttu fagnar 35 ára afmæli sínu á þessu ári. Platan kom út 24. september 1991 og hefur selst í yfir 30 milljón eintökum. Nevermind fékk frábæra dóma og er jafnan ofarlega á listum yfir bestu plötur allra tíma. Nirvana hlaut ýmis verðlaun fyrir þennan stórvirka grip. Rokkmessu sveitin, sem spilaði fyrir fullum húsum í Háskólabíó, Græna hattinum á Akureyri, Edinborgarhúsinu á Ísafirði, Sviðinu á Selfossi og Hljómahöll í Reykjanesbæ mun nú rokka aftur í IÐNÓ í sannkallaðri síð sumar rokk veislu. Lög Nevermind ásamt slögurum af Bleach, In Utero og fleira góðgæti verða flutt á þessum einstaka viðburði sem þú vilt ekki missa af.

NIRVANA ROKKMESSU SVEITIN Einar Vilberg – Söngur / Gítar Franz Gunnarsson – Gítar / Söngur Jón Svanur Sveinsson – Bassi / Söngur Stefán Ari Stefánsson – Trommur / Söngur

18 ára aldurtakmark

NIRVANA ROKKMESSA │ NEVERMIND 35 ÁRA
Hefst eftir
Hvenær
laugardagur, 29. ágúst 2026 · 20:00
Hvar
Iðnó · Vonarstræti 3
Miðaverð frá
5.900 kr.